13. mars 2012
15. febrúar 2012
Nokkuð hefur verið fjallað um Kútter Sigurfara og framtíð hans að undanförnu.
1. febrúar 2012
Núna standa yfir þemadagar í Grundaskóla í tilefni af 70 ára kaupstaðarafmæli Akraness í sumar. Nokkrir hópar hafa nýtt sér Safnasvæðið í vinnu sinni. Í morgun komu nokkrir föngulegir hópar í heimsókn.
19. desember 2011
Þorláksmessa 23. Desember 13-17
Aðfangadagur 24. Desember Lokað
Jóladagur 25. Desember Lokað
Annar í Jólum 26. Desember Lokað
8. desember 2011
Laugardaginn 10. desember verður haldin aðventuhátíð á Safnasvæðinu á Akranesi. Margt verður um að vera, ljósmyndasýning, leikrit og kórsöngur.
2. desember 2011
Laugardaginn 3 desember milli kl:14:00 og 15:00 verða nemendur Myndlistaskólans á Akranesi með sýningu í sýningarsalnum í Safnaskálanum. Vonandi mæta sem flestir og kíkja á afrakstur síðustu vikna. Allir velkomnir. Með kveðju Anna Leif og Þórey
11. nóvember 2011
Á morgun, laugardaginn 12. nóvember klukkan 12-17, verðurhaldinn handverksmarkaður á Safnasvæðinu á Akranesi. Þar verður á boðstólnum fjölbreytt úrval fallegra og eigulegra muna frá fjölda einstaklinga. Gestir ættu að geta klárað eitthvað af jólagjafainnkaupum ársins á markaðnum.
28. október 2011
Vökudagar eru mennigarhátíð sem haldin er á Akranesi dagana 27. október -6. nóvember. Nokkrir viðburðir eru á Safnasvæðinu af því tilefni.
Á morgun, laugardaginn 29. Október kl 13 mun Smári Jónsson opna myndlistasýningu sína Bland á striga í Safnaskálanum. Sýningin stendur til 18. nóvember og er opin alla daga frá klukkan 13 til 17.
Krakkarnir á Kletti, einni af deildum leikskólans Akrasels bjuggu til myndbrot af leik sínum og starfi á leikskólanum. Myndbandið er sýnt á Garðakaffi meðan á Vökudögum stendur.
Aðra dagskrárliði Vökudaga má nálgast HÉR á vef Akraneskaupstaðar.