Í Byggðasafninu í Görðum er sögu byggðar, atvinnu og mannlífs sunnan Skarðsheiðar gerð góð skil. Meginuppistaðan í gripaeign safnsins tilheyrir flokkunum atvinnuhættir, híbýlahættir og heimilishald. Þetta eru hverskyns amboð og áhöld sem tilheyrðu daglegum störfum til sjávar og sveita í gamla bændasamfélaginu, búsáhöld tengd innanbæjarstörfum, húsbúnaður og persónulegir munir af ýmsu tagi.
Þá varðveitir safnið nokkrar samstæðar minjaheildir svo sem verkfæri og áhöld iðnaðarmanna, lækna og ljósmæðra, tækniminjar og margt fleira. Allir ættu því að finna eitthvað við sitt hæfi á Byggðasafninu.