Vissir þú að undir klettaborg framan úr Akrafjalli er huldukonuklettur?
Upp af Vestri-Reyni er gríðarstór klettur og heitir Huldukonuklettur. Stendur hann neðan undir Kastalanum, sem er klettaborg framan úr Akrafjalli. Hann er einkennilegur og skrítinn í laginu. Vestan á klettinum er rauf, ekki óáþekk dyrum. Þarna á huldukona heima. Bletturinn í kringum klettinn hennar er jafnan grasi vafinn. Sóleyjar, fíflar, þúsundblaðarós og fleiri blómajurtir kinka kolli til huldukonunnar, þegar hafgolan leikur um blettinn hennar á sólhýrum sumardegi. Þar álög hvíldu á blettinum að ekki mátti slá hann. Væri brugðið út af því banni, drapst ein besta mjólkurkýr Reynisbónda eða annar uppáhaldsgripur í búi hans. Um það eru a.m.k. þrjú þekkt dæmi frá fyrri hluta síðustu aldar.